|
|
14.08.2007 02:14:22 / fannarhelgi
Kúlukrúttið er en í bumbuni og er ekkert að láta sjá sig.
Þannig að ég ákvað að drífa í að laga þvottahúsið og rífa allt
þaðan út og mála. Sem er nú ekki frá sögu færandi nema þegar
ég reif upp dúkinn sá ég að það var allt gjörsamlega úldið og
ógeðslegt, skápurinn var allur hangandi á voninni þannig að það var
kominn tími á að gera þetta, núna þegar ég er búinn að mála veggina
þá er bara komin tími á að mála gólfin. En þetta er bara enn
eitt skref í að laga íbúðina og gera hana flotta, þar til síðar
bless.
»
07.08.2007 00:01:12 / fannarhelgi
Mánudagur að kvöldi kominn og littla prinsessan er ekki komin,
hún ætlar sko að láta bíða eftir sér. Sem gerir mig ekki mjög
glaðan en það er lítið að gera við því hún kemur þegar hún vill
koma. Ekkert að gera við því.
Ég er nú urðin mjög spenntur að bíða og farin að hlakka til að
littla fjölskyldan verði fullmótuð og maður geti farið að skippta
um kúkableijur og leika sér við littla krútt, bíst við að blogga
næst þegar hún er komin, sem verður vonandi á morgun he he ....
»
01.08.2007 23:20:13 / fannarhelgi
Já Já við erum enn að bíða eftir krúttinu, orðin mikið
spenntur.
Vikan síðasta var erfið og rosalega mikið stress, bara mistök
gerð þegar allir eru útkeyrðir og mikið álag á öllum. Maður
er nú samt farinn að hlakka til að fara í frí og leika sér við
littlu dúlluna og gera eldhúsið. Annars er lítið að frétta bara
bíða og bíða
»
23.07.2007 00:24:27 / fannarhelgi
Jamms, við vorum að koma frá hellu þar sem ég tók gömlu
fjölskyldu vögguna og málaði upp á nýtt. Vaggan var keypt
fyrir Jón bróðir og síðan hafa allir í minni fjölskyldu notað hana
og nú littla mín.
Annars var gott að fara aðeins úr bænum og slaka á, sem maður
gerir oftast á hellu. En annars er ekkert að frétta nema að
dagarnir fara fækkandi og við erum orðin mikið spennt. nú er
bara mikil vinnu vika framundan að reyna að klára þessa blessuðu
blokk, þannig ef ég er lifandi eftir þessa vinnuviku ,,,,, sjáumst
þá.
»
08.07.2007 16:56:52 / fannarhelgi
Já það er rétt, maður er e h svo iðjusamur í dag. Kláraði
loksins að taka til í garðinum og henti öllum hellunum sem voru í
garðinum, úff. En það er ótrúlegt hvað fólk er dónalegt á Sorpu,
var komin með Pickann upp að gámnum og var að byrja að henda
þá fór bílinn fyrir framan mig frá. Sem er ekki stórmál en
bílinn fyrir aftan fór að flauta á fullu, vildi að ég færði mig en
ég ætlaði sko ekki að fara að burðast með draslið að gámnum þegar
ég gat bara fleygt beint af honum...
En garðurinn er að verða fínn fékk lánað orf hjá fólkinu við
hliðina og sló, var komin soldin órækt á garðinn. Nú er bara
spurning hvort maður noti ekki þessa orku e h meira
Er víst meira að gera hérna heima taka til og
svona inni. Barnaherbergið er að verða voða fínt og er bara
eftir að taka aðeins til í því, færa dót niður í geymslu og svona,
fara með útilegu dótið sem er að taka soldið pláss förum víst ekki
meira í útilegu í sumar.
Kveð núna í bili, see ya
»
06.07.2007 22:08:20 / fannarhelgi
Æ Æ að horfa upp á þetta fornfræga ökutæki í höndum á
Pólskum verkamanni

Ha Ha Ha Ha
Æ þetta er ljótt en sanleikur mmm, en það er
lítið að frétta af okkur hjónakornunum, bara sama alltaf, mikið að
gera í vinnuni og allt að verða brjálað. En það mjakast
allavega.
Síðan er smá veisla hjá Amin á morgun en Amin og
Gunni ætla að halda smá Party.... En skrifa kannski eh eftir það,
see y a
»
28.06.2007 23:24:58 / fannarhelgi
Dagurinn í dag var viðburðarríkur, þessi hitabylgja ætlar aldrei
að fara . Sem er bara gott því það er loksins sumar á
Íslandi. Vorum að versla sæta kommóðu fyrir engilinn okkar,
fyrir barnadótið, það er farin að vera smá mikil spenna á manni
fyrir littlakrútt en það styttist allt,
Síðan var keypt stólar og borð á fína pallin okkar sem að
Auðun (teingdó) og pabbi hjálpuðu mér að smíða, eða meira þeir
smíðuðu og ég hjálpaði til . Þannig að heimilið er allt að
koma til. Stefnan fyrir helgina er útilega, sem er
spennandi því það er svo góð spáin fyrir helgina að það er geggjun
að hanga heima. En já e h að skrifa og nóg að gera, see y a
»
26.06.2007 21:22:54 / fannarhelgi
Holu shit hvað það er heitt núna, og ég fæ að finna fyrir því í
vinnuni, er að mála glugga núna í húsinu sem ég er að vinna í og
geri ekkrt allan daginn nema að standa og horfa á sólina út um
gluggan, sem suckar soldið mikið.
En já, það er bara of heitt, og væri vel til í að fá kannski smá
ský, eða pínku rigningu, bara pínku það væri soldið gott.
En að lokum er að reyna að skrifa e h á hverjum degi , see y
a
»
24.06.2007 14:40:02 / fannarhelgi
Hellu, hjónakornin skelltu sér í útilegu um helgina á
laugabakka, eða var þetta reyndar ættarmót hjá fjölskyldunni henar
tinnu. Það var allveg þokkalegt, var reyndar allveg skít
kallt en jæja það er allveg hægt að horfa fram hjá því,
En þegar við komum heim var 27 stiga hiti á pallinum og við
sestum þar á nýja pallin, sem var mjög gott. En já viðburðar rík
helgi og leti sunnudagur framundan.
»
23.06.2007 00:23:09 / fannarhelgi
Jæja
Jæja
Það er víst þannig að allir eru að
blogga og ekki má maður vera eftirbátur í því. Heyrði að
bloggarar væru að þéna grimmt á svona dótaríi og ekki vil ég missa
af þeirri lest, en já er bara að byrja og sjáum hvernig
fer
»
|
|